Færslur: 2009 Febrúar
10.02.2009 21:36
Töltkeppni
Ágætu keppendur, við viljum vekja athygli á því að ekki verður snúið við í töltkeppninni.
í skráningu verður að koma fram upp á hvora hönd þið viljið keppa. Það eru tveir saman inn á í einu. Skráningargjald er 1.000.- fyrir fullorðna en 500 fyrir börn og unglinga.
Mótið hefst kl. 18.00 þar sem rúmlega 80 keppendur eru skráðir til leiks.
Dagskrá:
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
2. flokkur
1. flokkur
Úrslit:
B-úrslit í 2. flokki
B-úrslit í 1. flokki
Unglingar
A-úrslit í 2. flokki
A-úrslit í 1. flokki
Nefndin
09.02.2009 21:48
Frá liðstjóra liðs 1
Með kærri kveðju Guðrún Ósk þyngd en 52 kg, sem er alveg hreint lygilegt!
09.02.2009 21:46
Frá Æskulýðsnefnd
Fundur Æskulýðsnefndar 28 janúar 2009.
Fyrsti fundur Æskulýðsnefndar var haldinn í Félagshúsi okkar í Kirkjuhvammi þann 28. janúar 2009, fjölmennt var á fundinum þar sem starfið 2009 var kynnt.
Stefnt er að því að byrja reiðþjálfun 10 febrúar nk. sem fram fer í Reiðhöllinni á Hvammstanga, alls verða þetta 8 hópar og hver hópur fær tíma einu sinni í viku og mun reiðþjálfunin vera fram í maí. Þórir Ísólfsson mun sjá um að þjálfa krakkana í vetur. Þjálfunin mun kosta 7.000,- á barn og viljum við minna á að
frístundakortin gilda í þessu sem öðrum tómstundum.
Einnig munum við bjóða krökkum á leikskólaaldrinum uppá kennslu,þau verða þó ekkinema annan hvern laugardagsmorgun en það þarf að skrá þau sem ætla að vera með.
Einnig var kynnt Grunnskólamót sem við í samstarfi við Skagfirðinga og Blönduósinga munum halda. Alls eru þetta fimm grunnskólar sem munu keppi á þessu móti, það er grunnskólinn á Sauðárkróki, Hofsósi,Varmahlíð, Blönduós og Húnaþing vestra. Fyrsta mótið verður haldið á Sauðárkróki og verður það 28 mars nk., hér í Húnaþingi vestra 4 apríl og á Blönduósi 18 apríl, þetta mót verður betur kynnt og allar reglur í kringum það þegar nær dregur. Þetta er mjög spennandi mót og verður mikil reynsla fyrir krakkana að taka þátt í þessu ef þau kjósa það.
Farið verður á Æskuna og hesturinn sem haldinn verður 2 mai á Akureyri, nánar verður farið út í þá umræðu þegar nær dregur.
Okkur langar líka að hafa sýningu hér heima áður en skundað verður á Akureyri og lagðist það vel í fólk.
Einnig verður stundaskrá sett inn á heimasíðuna okkar með viðburðum hjá okkur en ekki er allt komið þar inn enn, en það verður sett inn á jafn óðum og eitthvað er ákveðið t.d. æfingar fyrir sýningar, reiðtúr, leikjadagur með þrautum og einnig aðrir viðburðir.
Bent var á að gott væri að senda tölvupóst á foreldra ef eitthvað nýtt kemur inná heimasíðuna varðandi starfið og ætlum við okkur að reyna að gera okkar besta í því.
Að lokum viljum við minna fólk á að ef þið hafið einhverjar hugmyndir varðandi sýningaratriði eða búninga endilega koma þeim til okkar og ef þið vitið af einhverjum sem vilja vera með þá er betra að hafa samband sem fyrst.
Og enn og aftur ítrekum við, að börnin og unglingarnir eru á ábyrgð foreldra bæði á æfingum og á sýningum sem farið er á.
Við þökkum öllum fyrir góðan fund og hlökkum til að sjá ykkur sem flest með okkur.
Núna ættu allir að vera búnir að fá upplýsingar um sýna hópa í reiðþjálfun þannig endilega látið heyra frá ykkur ef svo er ekki.
09.02.2009 12:11
Æfingar í Hvammstangahöll í dag
lið 3 er með höllina frá kl. 16.00 - 18.00
lið 2 er með höllina frá kl. 18.00 - 20.00
lið 1 er með höllina frá kl. 20.00 - 22.00
Allir að mæta sem vilja æfa sig fyrir mótið
Skráning á mótið skal senda á mailið kolbruni@simnet.is fyrir miðnætti þriðjudagsins 10. febrúar. Koma þarf fram upp á hvora hönd skal riðið, nafn knapa og upplýsingar um hestinn, IS númer eða ætt, aldur og litur.
09.02.2009 08:18
ÆFING HJÁ LIÐI 1
Æfing hjá liði 1 í kvöld kl. 20 í reiðhöllinni með eða án hests. Vonumst til að sjá sem allra flesta, líka þá sem ekki ætla að keppa
Sjáumst í kvöld
04.02.2009 13:11
Fundur vegna opnun Hvammstangahallarinnar
Seld verða kort inn í höllina sem gilda frá 9. febrúar til 1. nóvember 2009
Gj.einstaklings: 20.000.-
Hjónagjald: 30.000.- Þar sem enginn húsvörður er í húsinu, þurfa notendur að kveikja og slökkva ljós, hreinsa eftir sig í skemmunni og ganga rosalega vel um. Korthafar þurfa að sjá um að opna húsið og loka því einhvern tímann á tímabilinu. Tímabilinu verður skipt á milli korthafa og kemur í ljós hvað það kaupa margir kort hversu marga daga hver korthafi þarf að sjá um höllina. Ef skipulögð dagskrá eins og mót eða sýningar eru í reiðhöllinni þá getur þessi tími minnkað sem korthafar hafa fyrir sig. Reykingar eru bannaðar og lausir hundar eru ekki leyfðir í Reiðhöllinni - vinsamlega takið tillit til þess.
Nánari upplýsingar um stundartöflu og fl. verður komið með á fundinn.
Stjórnin
03.02.2009 13:50
Húnvetnska liðakeppnin
Ekki verður tekið við skráningum eftir 10. febrúar nema það henti mér og mínu liði (KOLLA)
Spennandi mót framundan!
Þar sem Stóra Hrísamálið er orðið mjög umfangsmikið var ákveðið að færa það á sér síðu sem er ekki á vegum Þyts. Niðurstöðu aganefndar er að vænta í dag eða á morgun:-)
www.storahrisamalid.bloggar.is
02.02.2009 11:24
Fundur
Hestamenn
Húnvetningar - Skagfirðingar - Siglfirðingar
Félagsmenn: Glæsis - Léttfeta - Stíganda - Neista - Þyts - Snarfara - Svaða
Landssamband hestamannafélaga (LH) býður stjórnum hestamannafélaganna og öllum áhugasömum félagsmönnum til fundar við fulltrúa LH. Fundurinn verður haldinn föstudagskvöldið, 6. febrúar nk. kl. 20:00 í kaffistofu reiðhallarinnar Arnargerði á Blönduósi.
Á fundinum munu fulltrúar LH fara stuttlega yfir þau málefni sem félagið er að vinna að
en ekki síst er ætlunin að heyra sjónarmið hestamanna á svæðinu.
Allir áhugasamir sem láta sig málefni hestamennskunnar varða
eru hvattir til að mæta og boðnir velkomnir.
Heitt á könnunni. Stjórn LH
02.02.2009 09:12
Svellkaldar konur í Skautahöllinni
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
1. Opinn flokkur: Ætlaður vönum knöpum. Konur sem unnið hafa til verðlauna í keppnum eru hvattar að skrá sig í þennan flokk. Þessi flokkur er þó opinn hverjum þeim sem vill skrá sig í hann, burtséð frá reynslu.
2. Meira keppnisvanar: Ætlaður vönum reiðmönnum sem hafa keppt nokkuð.
3. Minna vanar: Ætlaður konum sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni eða hafa litla keppnisreynslu.
Í 3. flokki er sýnt hægt tölt og svo fegurðartölt, en í öllum hinum flokkunum er sýnt hægt tölt, tölt með hraðabreytingum og fegurðartölt. Eingöngu er riðið upp á vinstri hönd og ekkert snúið við.
Keppendur eru hvattir til að sýna metnað við val á flokki og bent er á að þegar talað er um keppnisreynslu í þessu samhengi er átt við alls konar keppni, ekki bara keppni á ís.
Skráning verður auglýst þegar nær dregur en konur eru hvattar til að taka daginn strax frá! Allur ágóði af mótinu mun renna til landsliðsins í hestaíþróttum. Mótið er opið og allar konur 22 ára og eldri eru velkomnar til leiks!
Undirbúningsnefndin
01.02.2009 09:35
FM 2009
| |||
|
Nefnir hann sem nýlundu að nú er öllum hestamannafélögum í Norðvesturkjördæmi nú boðin þátttaka og hleypir það mönnum kapp í kinnar að vita af þátttöku t.d. Skagfirðinga á mótinu.
"Það er búið að skipa framkvæmdanefnd og viðræður standa yfir við væntanlegan framkvæmdastjóra mótsins. Þá er búið að taka ákvörðun um hvað á að framkvæma á sjálfu mótssvæðinu. Aðallega verður það breyting á kynbótabraut þannig að skeiðbraut verður lengd og þar fara munu kynbótadómar fara fram. Þá verður upphitunarvöllur færður til og lagfæringar gerðar á umferð um svæðið og komið á hringakstri," sagði Gunnar. Hann segir að veitinga- og salernisaðstaða verði í færanlegum húsum og tjöldum sem flutt verða á staðinn.
Það eru hestamannafélögin fimm á Vesturlandi sem standa að fjórðungsmótinu, þ.e. Dreyri, Faxi, Glaður, Snæfellingur og Skuggi. Eins og fyrr segir er búið að bjóða öllum hestamannafélögum í NV kjördæmi þátttöku og hafa þau tekið mjög vel í boðið, að sögn Gunnars. "Það er búið að funda með forsvarsmönnum þessara félaga tvisvar og mikill hugur hjá þeim að mæta. Við reiknum því með stóru móti í sumar og megum t.d. reikna með allt að 50 hrossum í hverjum flokki," segir Gunnar.
Þess má geta að hestamannafélögin hafa sent ósk um fjárstuðning til flestra sveitarfélaganna á Vesturlandi og segir Gunnar að flest ef ekki öll þeirra hafi neitað stuðningi að þessu sinni. "Við reiknum því ekki með stuðningi úr þeirri átt nú en höfum þó allar klær úti og er Gunnar Sturluson formaður framkvæmdarnefndar betri en enginn í þeirri vinnu," sagði Gunnar Kristjánsson að lokum.
Sjá greinina á www.skessuhorn.is
- 1
- 2