11.01.2010 12:17
KS deildin
KS-Deildin 2010 fer af stað með úrtöku um 6 laus sæti í deildinni miðvikudagskvöldið 27 janúar en að venju fer keppnin fram í Svaðastaðahöllinni. Mikil spenna er fyrir deildinni þennan veturinn enda hefur deildin með traustum stuðningi KS tryggt sér sess sem einn af stóru viðburðunum í vetrarhestamensku á Norðurlandi.
Keppt verður í 4-g og 5-g og gildir samanlagður árangur. Skráning fyrir föstudagskvöldið 22 janúar hjá Eyþóri í síma 842-5240.
Nú þegar eiga tryggt sæti í deildinni þau: Þórarinn Eymundsson, Mette Manseth, Ísólfur Líndal Þórisson, Bjarni Jónasson, Björn Jónsson, Magnús Bragi Magnússon, Ólafur Magnússon, Þorbjörn Mattíasson, Ragnar Stefánsson, Sölvi Sigurðsson, Stefán Friðgeirsson og Erlingur Ingvarsson.