28.04.2010 14:23

Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna - breytt dagsetning

Ákveðið hefur verið að færa Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna sem átti að vera dagana 5.-8. ágúst aftur um eina viku og verður það því 12.-15. ágúst. Ástæða þessa er beiðni frá Landssambandi Hestamanna (LH) þar sem Norðurlandamótið í hestaíþróttum er dagana 4.-8 ágúst og hefði því skarast á við Íslandsmótið. 

Þess má geta að hætt var við að halda Unglistarhátíðina eldur í Húnaþingi á sama tíma og Íslandsmótið þannig að þessi breyting hefur engin áhrif á þá hátíð. Sú ákvörðun hafði einnig áhrif á að hestamannafélagið Þytur varð við þessari beiðni LH.

Íslandsmótið verður því haldið dagana 12.-15. ágúst á félagssvæði hestamanna á Hvammstanga.


Stjórn Þyts

Flettingar í dag: 3450
Gestir í dag: 67
Flettingar í gær: 2099
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 2694973
Samtals gestir: 95801
Tölur uppfærðar: 1.2.2026 15:51:47