26.05.2010 21:25

Kynbótasýning á Blönduósi 3. og 4. júní 2010

Að öllu óbreyttu er stefnt að því að halda kynbótasýningu á Blönduósi fimmtudaginn 3. júní og yfirlitssýningu að morgni föstudags 4. júní.

Tekið er á móti skráningum hjá Búnaðarsambandinu á Blönduósi á netfanginu  rhs@bondi.is eða í síma 451-2602 / 895-4365.

Síðasti skráningardagur er mánudagur 31. maí.

Sýningargjald er 14.500 kr en 10.000 ef bara er annað hvort byggingadómur eða reiðdómur og þarf að greiðast samhliða skráningu inn á reikning 307-26-2650 á kt: 471101-2650 og senda kvittun á netfangið rhs@bondi.is  með upplýsingum um fyrir hvaða hross er verið að greiða.  

Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.

Nánari upplýsingar um tímasetningar verða á heimasíðu Búnaðarsambandsins www.rhs.is

Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda

Flettingar í dag: 749
Gestir í dag: 65
Flettingar í gær: 2796
Gestir í gær: 107
Samtals flettingar: 1417936
Samtals gestir: 74854
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 09:29:37