27.09.2010 09:12

Stóðréttir í Víðidal


Nú eru aðeins örfáir dagar í

stóðsmölun og stóðréttir í Víðidalstungurétt í Víðidal.

Hátíðin hefst  kl 17.30 á fimmtudaginn með sölusýningu á Gauksmýri.

Föstudaginn 1. okt. er stóðinu smalað til byggða.

Gestir sem ætla að taka þátt í smöluninni fara af stað frá Hrappstöðum um kl. 10.

Þeir sem ætla  að vestan mæta í Valdarásrétt um hádegi.

Um kvöldið er kjörið að fá sér kjötsúpu í Víðigerði

eða hjá þeim heiðurshjónum Siggu og Jóa á Gauksmýri.

Á laugardag verður grillhlaðborð á Gauksmýri og vissara að panta í síma 4512927.

Laugardaginn 2. okt. er stóðið rekið til réttar stundvíslega kl. 10

og hefjast þá réttarstörf.

Í réttinni stendur Kvenfélagið Freyja fyrir happdrætti

og fæst miði með því að versla veitingar af félaginu .

Aðalvinningurinn er folald !!

Í Víðidalstungurétt mjá jafnan sjá fjölda efnilegra unghrossa.

Búst má við uppboði á völdum hrossum þar sem hægt verður að

nálgast draumahestinn á viðráðanlegu verði.

Á laugardagskvöld er dansleikur í Víðihlíð þar sem hljómsveit Geirmundar

heldur uppi sveiflunni eins og honum einum er lagið.

Verið velkomin í Víðidal.

Flettingar í dag: 1271
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 10727
Gestir í gær: 144
Samtals flettingar: 1748939
Samtals gestir: 83828
Tölur uppfærðar: 2.4.2025 04:02:38