18.05.2011 18:14
Kynbótasýning hrossa á Hvammstanga
Kynbótasýning hrossa hefst á Hvammstanga miðvikudaginn 25. maí 2011. Dómar verða miðvikudag og fimmtudag og yfirlitssýning á föstudegi. Þetta getur þó breyst ef skráningar verða ekki í samræmi við áætlanir.
Best er að senda skráningar á tölvupósti - rhs@bondi.is - en einnig má hringja í síma 451 -2602.
Síðasti skráningardagur er föstudagur 20. maí.
Við skráningu þurfa að koma fram upplýsingar um hrossið,
fullnaðardómur eða bara bygging eða hæfileikar, nafn og kennitala
sýnanda, nafn og kennitala þess sem greiðir reikning og óskir um tíma ef
einhverjar eru.
Gjald er 15.000 fyrir fullnaðardóm en 10.500 ef bara
annað hvort bygging eða hæfileikar. Greiðist inn á banka 307-26-2650
(kt 471101-2650) samhliða skráningu og senda kvittun á rhs@bondi.is með upplýsingum fyrir hvaða hross er verið að greiða. Kynnið ykkur vel reglur um járningar, spattmyndir, dna ofl
Nánari upplýsingar og tímasetningar á www.rhs.is þegar nær dregur
Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda