06.02.2015 10:08
Svínavatn 2015
Laugardaginn 28. febrúar verður mótið haldið á Svínavatni í A-Hún. Keppt verður í A og B flokki gæðinga og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur á hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins, http://www.is-landsmot.is/.
Vegleg peningaverðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti í hverjum flokki, fyrir tilstuðlan helstu styrktar aðila mótsins sem eru; Hrossaræktarbúið Geitaskarði, G. Hjálmarsson, Margrétarhof og KS.
Eins og venjulega verður gott hljóðkerfi á staðnum og dagskránni útvarpað.
Skrifað af Kolla
Flettingar í dag: 950
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 643
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 1905804
Samtals gestir: 87563
Tölur uppfærðar: 18.5.2025 04:59:29