10.04.2015 21:42
Þytsjakkar og peysur
Á aðalfundi var sagt frá nýjum merktum Þytspeysum á krakka og Þytsjakka á fullorðna sem á að fara að panta.
Peysurnar fyrir börnin eru frá 66 North og er ein þeirra vinsælasta barnapeysa úr Polartec® Power Stretch® Pro. Heldur hita og er mjúk og þægileg. Lokaverð með merkingu auglýst þegar mátun verður auglýst en verðið er í kringum 7 þús.
Jakkar fyrir fullorðna:
Herraúlpa:
Létt og mjúk herra dúnúlpa með hettu. Efnið er vind-og vatnsfráhrindandi. Poki fylgir með til þess að setja úlpuna í svo lítið fari fyrir henni. Teygjubrydding er í ermalíningu og neðanverðum faldi. Innra byrði og rennilásar eru í gagnstæðum lit við skel.Tveir renndir hliðarvasar.Tvístungnir saumar. Beint snið. Lokaverð með merkingu auglýst þegar mátun verður auglýst en verðið er á milli 17 - 20 þús.
Dömuúlpa:
Létt og mjúk dömu dúnúlpa með hettu.Efnið er vind-og vatnsfráhrindandi. Poki fylgir með til þess að setja úlpuna í svo lítið fari fyrir henni. Teygjubrydding er í ermalíningu og neðanverðum faldi. Innra byrði og rennilásar eru í gagnstæðum lit við skel. Tveir renndir hliðarvasar. Tvístungnir saumar. Úlpan er aðsniðin. Lokaverð með merkingu auglýst þegar mátun verður auglýst en verðið er á milli 17 - 20 þús.
Skrifað af Kolla
Flettingar í dag: 749
Gestir í dag: 65
Flettingar í gær: 2796
Gestir í gær: 107
Samtals flettingar: 1417936
Samtals gestir: 74854
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 09:29:37