15.11.2017 21:34
Námskeið í vetur
Í vetur verða eftirfarandi námskeið í boði fyrir börn, unglinga og ungmenni:
• Reiðþjálfun - hentar vel minna vönum og yngri knöpum, kennd áseta, stjórnun og gangtegundir.
• Keppnisþjálfun - hentar vel þeim sem eru farnir að hafa vald á gangtegundum og stefna á keppni
• Knapamerki 2 - frábær grunnur fyrir alla knapa, skilyrði að hafa lokið knapamerki 1
• Knapamerki 3 - frábær grunnur fyrir alla knapa, skilyrði að hafa lokið knapamerki 1 og 2
Lagt verður upp með 10-12 skipti
Kennsla heft þriðju vikuna í janúar 2018
Helgarnámskeið
Í vetur ætlum við að bjóða upp á nýjung sem verður helgarnámskeið í Trec og hindrunarstökki en það hentar vel fyrir þá sem vilja byggja upp gott samband við hestinn sinn í gengum þrautir og leiki. Trec verður kennt í febrúar og hindrunarstökk í mars.
Ef einhverjum börnum langar að vera með en eiga ekki hest, endilega hafið samband við Æskulýðsnefndina og við getum hjálpað til við að útvega hesta.
Skráning á námskeiðin fer fram á e-maili: thyturaeska@gmail.com
Skráningarfrestur er til 15. desember. Einnig ef það eru fleiri reiðkennarar sem hafa áhuga á að koma að starfinu, mega endilega hafa samband við nefndina.