21.03.2023 15:38
Umsóknarfrestur á Youth Camp lengdur til 14. apríl.
Umsóknarfrestur að fara fyrir Íslands hönd á Youth Camp hefur verið lengdur til 14. apríl.
Námsbúðirnar verða haldnar dagana 14-19. júlí í Ypåjå í Finnlandi.
FEIF Youth Camp eru námsbúðir fyrir hestakrakka á aldrinum 14-17 ára á árinu. Markmið þeirra er að kynna krakka frá aðildarlöndum FEIF fyrir hestamenningu annara þjóða, auka skilning á menningarlegum mun okkar að nálgast hestinn og að hitta ungt fólk með sama áhugamál.
Það sem verður meðal annars á dagskrá er:
- Reiðtúrar á íslenskum hestum í fallegu landslagi, hádegisverður við varðeld
- Sýnikennsla og fyrirlestur um flugskeið
- Kynningarferð um Hestaháskóla Ypåjå
- Kynning á finnska hestinum og finnskri hestamenningu
- Vinnustofur: Leðurvinna, járningar
- Kynnast nýjum krökkum og eignast nýja vini
- Farið er í sauna og synt í finnskum vötnum
- Og margt fleira!
Í ferðinni er töluð enska og er þetta því frábært tækifæri til að æfa og efla enskuna betur.
Við hvetjum alla sem hafa tök á að sækja um því um er að ræða mikið ævintýri og er þetta dýrmæt reynsla í minningarbankann.
Kostnaður við búðirnar er 660 evrur (ca. 101.000 eins og gengið er í dag), en inní því er fæði, allar ferðir og afþreying. Flug til Finnlands, vasapeningur og annað er ekki innifalið.
Skrifstofa LH veitir allar nánari upplýsingar í síma 514 4030 eða í gegnum netfangið lh@lhhestar.is.