27.05.2025 20:47
Gæðingamót Þyts og úrtaka hestamannafélaganna Þyts, Snarfara og Neista !!!
Gæðingamót Þyts og úrtaka hestamannafélaganna Þyts, Snarfara og Neista fyrir Fjórðungsmót 2025 verður haldin á Hvammstanga 14. og 15. júní.
Skráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 10. júní inn á skráningakerfi Sportfengs www.sportfengur.com
Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 4.500 kr. og fyrir börn og unglinga 3.500 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 3.500 kr á hest.
Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.
Í Gæðingatölti verður opinn flokkur
Skráningargjad skal greiða um leið og skráð er og senda kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com.
Kt: 550180-0499 Rnr: 0159 - 15 - 200343