20.03.2026 11:24
Folalda og unghrossasýning HSVH 2026
![]() |
Þar sem það heppnaðist svo skemmtilega í fyrra þá ætlum við að endurtaka leikinn og halda folalda- og unghrossasýningu á Sindrastöðum þann 06. apríl 2026!
Sýningin er opin öllum og hægt er að koma með folöld og tryppi allt að þriggja ára aldri. Tilvalið tækifæri til að kynna t.d. efnilega ungfola!
Eins og í fyrra þá ætlar Eyþór Einarsson að dæma og verða niðurstöður skráðar á síðunni icefoal.com. Dæmt verður í flokki hestfolalda, merfolalda, ungfola og unghryssna. Einnig verður veitt verðlaun fyrir glæsilegasta tryppið sýningarinnar.
Öll folöld og tryppi verða að vera örmerkt og grunnskráð í Worldfeng til að eiga þátttökurétt!
Skráning fer fram í gegnum netfangið sonja@laekjamot.is og við skráningu þarf að koma fram IS-númer tryppis.
Skráningargjald er 2.500 kr. fyrir félagsmenn HSVH en 3.500 kr. fyrir aðra. Millifæra inn á reikning 0159-26-000992 kt. 6311882579 við skráningu.
Skráningu lýkur föstudagskvöldið 03.04.25 kl. 23.59.
Nánari upplýsingar varðar dagskrá og tímasetningu verða bætt við síðar.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Stjórn HSVH

