05.04.2026 04:19
Smali - úrslit
![]() |
Frábær keppni í smala í gærkvöldi þar sem fjöldi áhorfenda kom að styðja sitt fólk og stemmingin eftir því í húsinu. Mótanefnd ákvað þar sem keppendur hefðu mátt vera fleiri að leyfa öllum að fara 2 umferðir og þær myndu báðar gilda til úrslita. Semsagt ekki voru riðin hrein úrslit eins og verið hefur undanfarin ár.
Pollar sem mættu til leiks voru Embla Malen Daníelsdóttir á Blíðu frá Grafarkoti, Helga Mist Magnúsdóttir á Birting frá Stóru-Ásgeirsá, Júlía Jökla Kristjánsdóttir og Marel frá Hvammstanga, Margareta Lont og Keilir frá Galtanesi, Sólon Helgi Ragnarsson og Drangey frá Grafarkoti og Viktoría Jóhannesdóttir Kragh og Prins frá Þorkelshóli.
Úrslit má sjá hér:
Spennan var óbærileg í fullorðinsflokki og gáfu allir í botn í seinni umferðinni og urðu sviptingar á toppnum. Gréta og Brimdal enduðu best í báðum sprettum með 2 snilldarlega riðna spretti.
Mótanefnd þakkar fyrir veturinn og svo er bara spurning hvort við höfum sömu greinar næsta vetur eða breytum eitthvað til ???

