26.06.2008 11:49
Knapafundur, áríðandi tilkynning frá mótstjórn LM
Mótsstjórn boðar alla knapa sem þátt taka í Landsmóti á knapafund, nk. sunnudag, 29. júní, kl. 17:00. Áríðandi er að allir knapar mæti en á fundinum verður farið yfir helstu atriði er varða mótið, reglur og tilhögun. Fundurinn verður haldinn í stóra veitingatjaldinu sem nú þegar er risið á Gaddstaðaflötum. Þess má geta að ekki er ólíklegt að tækjakostur LM verði prufukeyrður um þetta leyti þannig að áhugamenn um fótbolta ættu að njóta góðs af því beint eftir að fundi lýkur.
Mótsstjórn LM 2008
Mótsstjórn LM 2008
Skrifað af Kolla
Flettingar í dag: 958
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 896
Gestir í gær: 56
Samtals flettingar: 3076046
Samtals gestir: 98452
Tölur uppfærðar: 10.6.2026 06:23:26
