09.01.2009 12:19
Meistaradeild Norðurlands
Undirbúningur fyrir Meistaradeild Norðurlands KS-Deildina er nú kominn á fullt skrið. Keppnin mun fara fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Allir þeir knapar sem unnu sér þátttökurétt sl.vetur hafa staðfest komu sína nema Eyrún Ýr Pálsdóttir sem verður á Suðurlandi í vetur við verknám.
Því eru sjö sæti laus sem keppt verður um. Vitað er um nokkra mjög sterka knapa sem hafa þjálfað markvisst með úrtökuna í huga.
Úrtakan verður haldin 28.janúar og verður keppt í fjórgangi og fimmgangi.
Skráning fyrir sunnudaginn 25. janúar hjá Eyþóri í síma 8482725.
Keppnisdagar í vetur verða síðan eftirtaldir.
18. febrúar 4-gangur 4. mars tölt 18. mars 5-gangur 1.apríl smali og skeið
Meistaradeild Norðurlands.