02.02.2010 08:37
Húnvetnska liðakeppnin - fjórgangur
Lokaskráningardagur í dag fyrir Húnvetnsku liðakeppnina og verður að vera búið að skrá á miðnætti. Skráning er hjá Kollu á mail: kolbruni@simnet.is. Keppt verður í fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki og flokki 17. ára og yngri (fædd 1993 og seinna) Það sem koma þarf fram er knapi, lið, hestur, ætt, litur og aldur og upp á hvora hönd þið viljið ríða. Það verða tveir inn á í einu og er prógrammið, hægt tölt, brokk, fet, stökk og fegurðartölt.
Skráningargjald er 1.500.- fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri. Skráningargjöld verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.
Aðgangseyrir er 1.000.- og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Allt um reglur keppninnar má sjá hér.
Mótanefnd

Skrifað af Kolla
Flettingar í dag: 1679
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 2554
Gestir í gær: 63
Samtals flettingar: 3041696
Samtals gestir: 98168
Tölur uppfærðar: 15.5.2026 08:42:50