16.09.2010 11:12

Sölusýning á Gauksmýri.



Sölusýning verður haldin á Gauksmýri fimmtudaginn 30. september kl 17.30 í tengslum við Víðidalstungurétt.

 

Fimmtudaginn 23.sept verður boðið uppá videoupptöku á þeim hrossum sem menn hafa í boði, mun videoupptakan fara fram á vallarsvæði Þyts upp í Kirkjuhvammi. Þar fá allir video af sínum hesti og við munum setja videoin inn á youtube.com fyrir þá sem það vilja.

En video af öllum hrossunum verður sýnt á Gauksmýri á fimmtudeginum og í Víðidalstungurétt á laugardeginum.

 

Þeir sem vilja láta video af hrossum og taka þátt í sölusýningu er bent á að hafa samband við Tryggva í síma 898-1057 eða senda póst hrima@hrima.is í síðasta lagi þriðjudaginn 21. september. Þar þarf að koma fram IS númer hests og símanúmer umráðamanns.

 

Skráningargjald fyrir hvert hross í videoupptöku er 3000 krónur.

 

Vonandi sjáumst við sem flest og seljum sem mest.

 

Hrossaræktarsamtök V-Hún

Félag hrossabænda A-Hún

Flettingar í dag: 1096
Gestir í dag: 78
Flettingar í gær: 1500
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 958681
Samtals gestir: 50224
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 10:38:14