04.02.2011 13:31

Ís-landsmót 2011



Líkt og undanfarin ár verður haldið Ís-landsmót á Svínavatni en það hefur notið vaxandi vinsælda meðal hestamanna og koma margir um langan veg til að taka þátt. Mótið mun fara fram laugardaginn 5. mars næstkomandi.

Keppt verður í A og B flokki og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar um mótið birtar í hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins.  

Flettingar í dag: 1882
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 2111
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 2999833
Samtals gestir: 97835
Tölur uppfærðar: 3.5.2026 10:17:24