22.10.2011 10:27
Uppskeruhátíð barna og unglinga

Á laugardaginn kemur 29. október kl. 13:00 verður Uppskeruhátíð barna- og unglinga haldin í Félagsheimilinu Ásbyrgi.
Viljum við hvetja börn og unglinga sem voru með okkur á námskeiðum, sýningum, leikjum og keppnum síðasta vetur og sumar að koma með foreldra sína og gleðjast með okkur.
Það verða veittar viðurkenningar, farið yfir starfsemi síðasta árs og kynnt starfsemi komandi vetrar.
Já og svo verða auðvitað kræsingar á boðstólum.
Hlökkum til að sjá ykkur
Æskulýðsnefnd Þyts
Skrifað af Guðnýju
Flettingar í dag: 3016
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 10464
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 2948071
Samtals gestir: 97612
Tölur uppfærðar: 16.4.2026 08:36:15
