14.11.2011 23:00

Enn frekar rólegt á Bessastöðum.


Tamningakonurnar okkar Helga Rún og Fríða Rós klárar í vetrarstarfið og
Prins og Tanja líka.


Á Bessastöðum er allt með rólegasta móti í hesthúsinu þessa dagana. Það er verið að tæma haughúsið og dytta að innréttingum og girðingum. Frumtamningum lauk fyrir um þrem vikum með útskrift á 7 tryppum á fjórða vetur. Þau voru öll orðin reiðfær og eru öll álitleg. Nú eru inni 5 hross, heimasæturnar þjálfa sitt hvort hrossið og hinir þrír voru í fríi í sumar þar á meðal stóðhesturinn okkar hann Sjóður. Eftir 10 daga eða svo tökum við inn 10-12 hross þar á meðal hryssur sem stóðu sig vel á þessu ári. Þegar þau verða komin í gang tökum við hryssurnar á fjórða vetur. Þá eiga að vera komin á járn rúmlega 20 hross.


Magnús Björn fær að taka þátt í hrossaræktinni þó hann vilji ekki á bak. Hér er hann að gera við girðingu útigangshrossanna.Hugsun og Mjölnir frá Bessastöðum gefa góð ráð.


Fríða Rós er að temja Tönju sem við fengum lánaða handa henni frá Gauksmýri.
Það ríkir mikil hamingja á þeim vígstöðvum.




Flettingar í dag: 1244
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 969
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 957329
Samtals gestir: 50139
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 19:31:16