29.10.2013 20:24

Helga Una og Ísólfur tilnefnd á landsvísu



Tveir Þytsfélagar eru tilnefndir sem knapar ársins á landsvísu. En það eru snillingarnir Helga Una Björnsdóttir sem kynbótaknapi og Ísólfur Líndal sem gæðingaknapi.

Nefnd um knapaval á Uppskeruhátíð hestamanna, sem haldin verður 9.nóv, hefur skilað af sér tilnefningum. Tilnefndir eru fimm knapar í hverjum flokki en flokkarnir eru: íþróttaknapi, skeiðknapi, gæðingaknapi, kynbótaknapi, efnilegasti knapinn og knapi ársins.

Frábær árangur hjá þessum tveim flottu Þytsfélögum. Innilega til hamingju !!!

Flettingar í dag: 825
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 3030
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 2994363
Samtals gestir: 97829
Tölur uppfærðar: 1.5.2026 07:37:48