25.01.2018 10:21
Þytsheimar - námskeiðahald
Hestamannafélagið Þytur og stjórn reiðhallarinnar hafa komist að samkomulagi um að tímar eftir kl:20 í reiðhöllinni ef ekki eru önnur námskeið í gangi séu í boði endurgjaldlaust til námkeiðahalds fyrir félagsmenn Þyts sem eru með aðgangskort í reiðhöllinni . Skilyrði er að nemendur séu tveir eða fleiri og reiðkennarinn sé Þytsfélagi. Ekki þarf að tilkynna fyrirfram um notkun, þar sem gert er ráð fyrir að námskeið geti farið fram í helmingi reiðhallar og aðrir sem vilja nota reiðhöllina á þessum tímum noti þá hinn helminginn.
Skrifað af Stjórn Þyts
Flettingar í dag: 1679
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 4269
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 2971193
Samtals gestir: 97777
Tölur uppfærðar: 25.4.2026 11:12:58
