29.04.2022 12:19
Viðburður til minningar um Sigrúnu Þórðardóttur
Sunnudaginn 1. maí kl. 11:00 stendur til að setja upp skilti á reiðhöllina, þ.e.a.s. merkja hana með nafninu Þytsheimar. Að viðburðinum stendur hópur kvenna sem tengjast Sigrúnu heitinni Þórðardóttur fyrrum formanni. Hestamannafélagið hvetur félagsmenn til þess að mæta á viðburðinn til þess að heiðra minningu Sigrúnar.
Eftir afhendingu á skiltinu býður Þytur upp á drykki í kaffistofu reiðhallarinnar og grillaðar verða pylsur. Eftir pylsuát og drykkju væri svo tilvalið að skella sér í sameiginlegan reiðtúr. Allir velkomnir.
Skrifað af Stjórn Þyts
Flettingar í dag: 4524
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 6572
Gestir í gær: 61
Samtals flettingar: 2064594
Samtals gestir: 89341
Tölur uppfærðar: 5.7.2025 19:18:37