20.03.2023 05:10

Mótaröð Þyts - Smali

                                                     
 

Næsta mót í Mótaröð Þyts er smali og verður laugardaginn 25. mars nk og hefst kl. 18.00, keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki og fullorðinsflokki. Pollar auðvitað velkomnir að koma og keppa í smala. 

Skráning í smala fer í gegnum netfangið thytur1@gmail.com og fram þarf að koma nafn knapa, nafn hests (IS númer) og í hvaða flokki knapi keppir í. Skráningargjald er 2.000 í öllum flokkum nema pollaflokki er það 0. Millifæra má inn á reikning 0159 15 200343 kt 550180-0499. Lokaskráningardagur er fimmtudagurinn 23.03

Í barnaflokki þarf ekki að sækja veifuna á tunnunni eins og í hinum flokkunum og breyting miðað við myndina er að í síðustu ferðinni er farið undir 3 limbóstangir. 

 

Reglur smalans:

Smalinn dregur nafn sitt af einu mikilvægasta hlutverki íslenska hestsins frá örófi alda. Eiginleikar sem prýða góðan smala og smalahest eru nauðsynlegir ef árangur á að nást, þetta eru þættir eins og hraði, kjarkur, fimi og snerpa.

Riðin er braut sem mörkuð er keilum sem ná upp á síður hests. Keilurnar skulu vera þannig útbúnar að þær falli við litla snertingu. Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum. Reiknireglur eru þær sömu og í tímabraut torfærunnar. Smalinn er hrein grein í þeirri merkingu að árangurinn er mælanlegur án frávika, þ.e. hann ræðst eingöngu af tíma og felldum keilum en ekki mati dómara. Dómarar eru engu að síður til staðar og meta hvort knapinn fari gegnum öll hlið, telja felldar keilur og hafa eftirlit með reiðmennsku knapa líkt og í öðrum keppnisgreinum.

Stigin telja þannig að knapar raðast í sæti eftir besta tímanum, sá sem er fyrstur fær 300 stig, sá næsti 280, 270 o.s.frv. Við hverja fellda keilu dragast frá 14 stig. Fyrir sleppt hlið eru 28 refsistig. Yfir brúnna er ekki leyft að fara á stökki þ.e.a.s allur annar gangur er í lagi. Ef brúnni er sleppt þá er það 4x28 refsistig Gult spjald= gróf reiðmennska 30 refsistig Rautt spjald= MJÖG gróf reiðmennska ÚR LEIK!

ATH. Við síðustu tunnu sem er í horninu fyrir lokaferðina, þar verður veifa ofan á tunnunni sem knapar þurfa að ná og taka með sér í mark.

Flettingar í dag: 894
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 3243
Gestir í gær: 123
Samtals flettingar: 961722
Samtals gestir: 50301
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 06:37:33