23.05.2026 09:24
Gæðingamót og úrtaka Þyts og Snarfara fyrir LM 2026
![]() |
![]() |
Sameiginlegt Gæðingamót og úrtaka hestamannafélaganna Þyts og Snarfara fyrir Landsmót á Hólum 2026 verður haldin á Hvammstanga 6.- 7. júní.
Skráningar skuli berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 2. júní inn á skráningakerfi Sportfengs www.sportfengur.com
Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka ef ekki næst næg þátttaka.
Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 5.000 kr. og fyrir börn og unglinga 4.000 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 4.000 kr á hest.
Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.
Í Gæðingatölti verður opinn flokkur
Skráningargjad skal greiða um leið og skráð er og senda kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com.
Kt: 550180-0499 Rnr: 0159 - 15 - 200343


