Færslur: 2011 Febrúar

08.02.2011 12:43

Lokaskráningardagur í dag...



Fyrsta mótið í liðakeppninni er fjórgangur og keppt verður í Þytsheimum á föstudagskvöldið nk. Mótið hefst kl. 17.00. Lokaskráningardagur er í dag og þarf skráningu að vera lokið á miðnætti. Það sem koma þarf fram er nafn og kennitala knapa, lið, flokkur, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða.

Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.

Aðgangseyrir er 1.000 frítt fyrir 12 ára og yngri.

Mótanefnd liðakeppninnar

07.02.2011 14:46

FEIF Youth Camp 2011, Skotlandi

Dagsetning: 23. - 30. júlí 2011

Verð: 530 - 550 ?


Hvert land hefur rétt til að senda 2 þátttakendur, en einnig verður biðlisti ef sæti losna, sem hefur verið undanfarin ár. Flugfargjald er ekki innifalið í þátttökugjaldinu.

Skilyrði: Þátttakendur verða að vera á aldrinum 13 - 17 ára, á árinu, verða hafa einhverja reynslu í hestamennsku og geti skilið og talað ensku.

Staðsetning: Búðirnar verða haldnar í Broomlee outdoor center í Skotlandi. 22,5  km. fyrir utan Edinborg. Nánari upplýsingar um staðinn er að finna á www.  soec.org.uk/pages/broomlee.asp

Dagskrá: Í grófum dráttum er dagskráin á þessa leið; farið verður á hestbak í skosku hálöndunum, sýnikennsla á hestum, heimsókn í Edenborgarkastala, draugaganga í gömlu Edinborg, útivera og hefðbundin skosk kvöldvaka.

Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu LH, Engjavegi 4, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík fyrir 06. mars 2011. Á umsókninni þarf að koma fram nafn, kennitala, heimili, í hvaða hestamannafélagi viðkomandi er og nokkrar línur um reynslu í hestamennsku.

 

Þegar búið verður að velja þá úr sem uppfylla skilyrðin verður dregið úr umsóknum.

Æskulýðsnefnd LH

07.02.2011 14:38

Spónn til sölu

Hef til sölu íslenskan spón frá Skógarvinnslunni á góðu verði.
Upplýsingar og pantanir í síma 848 0003.  Ingvar.

04.02.2011 13:31

Ís-landsmót 2011



Líkt og undanfarin ár verður haldið Ís-landsmót á Svínavatni en það hefur notið vaxandi vinsælda meðal hestamanna og koma margir um langan veg til að taka þátt. Mótið mun fara fram laugardaginn 5. mars næstkomandi.

Keppt verður í A og B flokki og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar um mótið birtar í hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins.  

Flettingar í dag: 1731
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 3243
Gestir í gær: 123
Samtals flettingar: 962559
Samtals gestir: 50319
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 12:11:01