22.01.2019 17:40

Knapamerki komin á fullt

 

 

Þessir knapar tóku bóklegt próf í knapamerki 1, 3 og 4 fyrir áramót og stóðust það öll með stakri prýði.

Nú eru verklegu tímarnir byrjaðir og eru kenndir einu sinni í viku. 

Hver og einn knapi fær síðan heimaverkefni með hestinum sínum á milli tíma.

Skemmtilegt námskeið sem endar síðan með verklegu prófi í apríl. Kennari er Fanney Dögg Indriðadóttir 

 
 
 
 

21.01.2019 10:44

Norðlenska mótaröðin 2019


Norðlenska mótaröðin 2019 er samstarfverkefni  hestamannafélaga í Skagafirði, Austur Húnavatnssýslu og vestur Húnavatnssýslu (Skagfirðings, Neista og Þyts )og haldin verða fjögur reiðhallarmót.

Fyrsta mótið verður haldið 16. febrúar í Þytsheimum á Hvammstanga
Þar verður keppt í fjórgangi, gert er ráð fyrir að það verði keppt í 6.flokkum (börn,unglingar,ungmenni, 1.2.3. flokkur fullorðna)

Annað mótið verður 2.mars í reiðhöllinni Svaðastöðum
Keppt verður í fimmgangi 1.2.3.flokkur og ungmennaflokki
Fjórgangur eða tölt börn og unglingar

Þriðja mótið verður 16.mars Þytsheimum á Hvammstanga
Keppnisgrein tölt, allir flokkar

Fjórða mótið verður 30 mars reiðhöllinni á Svaðastöðum
Keppnisgreinar: Slaktaumatölt og skeið
Tölt eða fjórgangur börn og unglingar

Mótin verða á laugardögum í vetur og byrja þau kl 14:00 og verður stigakeppni milli hestamannafélaga.

15.01.2019 21:18

Þrif í höllinni !!!



Föstudaginn nk, 18. janúar ætlar Nína að vera upp í höll að þrífa. Ef einhverjir sjá sér fært að mæta og aðstoða þá verður hún á svæðinu frá kl. 15.00

Með fyrirframþökk

Reiðhallarnefndin.

15.01.2019 21:10

Þorrablót Þyts 2019



"Þorrablótið okkar" verður haldið uppi í Þytsheimum föstudagskvöldið 25. janúar næstkomandi frá kl. 19.00 - 23.00. Hver og einn kemur með þorramat og drykki að eigin vali og svo munum við eiga skemmtilegt kvöld í leik og spjalli, ungir sem aldnir. 

Þar sem við þurfum að greiða leigu fyrir Þytsheima verður aðgangseyrir kr. 500, - 14 ára og eldri emoticon

Sjáumst hress og kát !!!


Nefndin

14.01.2019 17:49

Járninganámskeið

 

 
 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrirhugað er að halda járninganámskeið helgina 23.-24. Mars.

Kennari verður íslandsmeistarinn í járningum 2018, Kristján Elvar Gíslason járningameistari og kennari við Háskólann á Hólum.

Um er að ræða tveggja daga námskeið sem hentar bæði fyrir byrjendur í járningum og þá sem eitthvað hafa járnað en vilja auka við færni sína.

Skráningar hjá Hallfríði, s: 8655545 eða á netfangið hallfriduro@hotmail.com .

Mikilvægt að fólk skrái sig sem fyrst svo við sjáum hvort þátttaka sé nóg til að hægt sé að halda áfram með skipulagningu.

Einnig er kannski rétt að geta þess að það er hámarksfjöldi á námskeiðið og verða það þá þeir sem fyrstir panta sem komast að.

13.01.2019 03:40

Reiðnámskeið 2019


Reiðnámskeið veturinn 2019

Kennsla hefst þriðjudaginn 15. janúar 

Reiðþjálfun kl 16:30 -  Vigdís , Hafþór, Valdís Freyja og Kara Sigurlína  
Keppniþjálfun kl 17:10 - Svava, Jólin, Rökkvi og Linda   

Fyrir utan þessi námskeið er knapamerki kennt yfir allan veturinn, einnig verður TREC námskeið og námskeið í hindrunarstökki ef næg þátttaka næst. 

08.01.2019 23:18

Þytsferð í Borg Óttans

 

Liðsmynd síðan í fyrra


Fyrirhugað er að fara í skemmtiferð til Reykjavíkur á fyrsta mót Áhugamannadeildar Spretts

sem haldið verður fimmtudaginn 7.febrúar n.k.  til þess að styðja við bakið á Þytsfélögum okkar sem eru að keppa þar.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við Nínu Sig. í síma: 895-2564 til að skrá sig ekki seinna en 31.janúar

Hugmyndin er að fara saman í rútu suður, borða saman og hvetja okkar fólk til dáða og heim aftur um kvöldið. 

 

08.01.2019 23:04

Góður félagsfundur var haldinn í kvöld

 

8. Janúar 2019 - Almennur félagsfundur
Mættir fyrir hönd stjórnar: Pálmi Ríkharðsson formaður, Friðrik Már Sigurðsson ritari, Fanney
Dögg Indriðadóttir aðalmaður, Sofia Krantz aðalmaður.
Mættir: Jónína Sigurðardóttir, Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir, Jóhann Albertsson, Þóranna
Másdóttir, Jónína Lilja Pálmadóttir, Guðmundur Sigurðsson, Tryggvi Rúnar Haukson, Þorgeir
Jóhannesson, Irena Kamp, Eva-Lena Lohli, Steinbjörn Tryggvason, Aðalheiður Einarsdóttir,
Jóhann Birgir Magnússon, Kolbrún Stella Indriðadóttir, Rakel Gígja Ragnarsdóttir, Malin Person
og Herdís Einarsdóttir.


Fundur settur kl. 20:30
Dagskrá:
1. Sameiginleg mótaröð hestamannafélaganna Þyts, Neista og Skagfirðings
2. Kyning á starfi fræðslunefndar
3. Námskeið með Ísólfi Líndal
4. Karlatölt Norðurlands
5. Firmakeppni Þyts
6. Ljósleiðaratenging í reiðhöll
7. Önnur mál

Umræður:
1. Pálmi fer yfir aðdraganda þessarar mótaraðar. Fundur fulltrúa stjórnar félaganna fór fram
nýlega og var rætt um að hafa 4 eða 5 mót sem öll færu fram á laugardögum eftir
hádegi. Keppt yrði í fjórgangi þann 16. febrúar, fimmgangi 2. mars , tölti 16. mars ,
skeiði og slaktaumatölti 30. mars og svo yrði mögulega haldið ísmót, þó eftir veðurfari
og aðstæðum. Fjórgangur og tölt yrði haldið á vegum Þyts á Hvammstanga.
Fimmgangur og skeið og slaktaumatölt yrðu haldin á Sauðárkróki. Mögulegt ísmót yrði
haldið á vegum Neista. Almenn ánægja hjá fundarmönnum með þessa tilhögun en
sérstök mótanefnd félaganna sjái um nánari útfærslu mótaraðarinnar. Jónína Lilja
Pálmadóttir, Jóhann Birgir Magnússon, Elvar Logi Friðriksson sjái um skipulag ásamt
fleirum.

2. Sofia Krantz kynnir starf fræðslunefndar. Á döfinni eru tvenn námskeið, skeiðnámskeið
með Þorsteini Björnssyni reiðkennara á Hólum og járninganámskeið með Kristjáni Elvari
Gíslasyni líklega 23.-24. mars. Einnig voru reifaðar hugmyndir varðandi frekara
námskeiðahald á svæðinu, s.s. þjálfun í upphafi vetrar, uppstilling í byggingadómi,
tannheilbrigði og undirbúningur fyrir hestaferðir.

3. Pálmi kynnir fyrirhugað námskeið með Ísólfi Líndal. Reiðtímarnir yrðu með reglulegu
millibili yfir vesturinn. Allt eftir þörfum hvers og eins nemanda. Nú þegar eru 6 búnir að
skrá sig, svo að það eru því allar líkur að af þessu verði.

4. Rætt um Karlatölt Norðurlands í Þytsheimum. Herdís Einarsdóttir hefur séð um
skipulagningu. Möguleg dagsetning er síðasta vetrardag, þann 24. apríl.

5. Aðalheiður Einarsdóttir fór yfir fyrirkomulag firmakeppni Þyts. Þátttaka hefur verið góð og
rætt um að halda hana með svipuðu sniði og áður. Líkleg dagsetning er 9. mars.

6. Pálmi ræðir um að það þurfi að koma nettenginunni í reiðhöllinni í gagnið.Tryggvi Rúnar
bendir á að það eigi eftir að teikna lögnina og málið strandi hjá Mílu. Nauðsynlegt er að
koma einhverri nettenginu á fyrir vetrarmótin.

7. Rætt um að verða með ferð og fjölmenna á Áhugamannadeildina og styðja okkar fólk
sem keppir í henni. Mögulega einnigað skoða sameiginlega ferð á Fáka og fjör í Eyjafirði
í vor. Þá var rætt um að funda fljótlega varðandi málefni reiðhallarinnar. Ljóst er að þörf
er á að koma skipulagi á eftirlit og þrif hallarinnar til framtíðar.


Fundi slitið: 22:05

01.01.2019 23:25

Gleðilegt nýtt ár

 

 

 

Stjórn Þyts vill óskar öllum Þytsfélögum gleðilegs nýs árs

 

með þökk fyrir allt liðið gamalt og gott........ og vont ;) 

 

01.01.2019 19:20

Félagsfundur

 
 

Almennur félagsfundur verður haldinn í Þytsheimum 8. janúar n.k. kl. 20:30

Farið verður yfir starf vetrarins og það sem er framundan hjá okkur. 

Kynning á nýrri deild, kennslu, námskeiðum og fl. 

Vonumst til að sjá sem flesta. 

Stjórnin. 

 

11.12.2018 10:31

Æskulýðsstarf Þyts veturinn 2019


Í boði verða eftirfarandi námskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni:

·         Reiðþjálfun - hentar vel minna vönum og yngri knöpum, kennd áseta, stjórnun og gangtegundir.  

·         Keppnisþjálfun - hentar vel þeim sem eru farnir að hafa vald á gangtegundum og stefna á keppni

Lagt verður upp með 10 skipti

Kennsla hefst  15.janúar 2019

 

Helgarnámskeið

Í vetur ætlum við að bjóða upp á helgarnámskeið í Trec og hindrunarstökki en það hentar vel fyrir þá sem vilja byggja upp gott samband við hestinn sinn í gengum þrautir og leiki. 

 

Trec verður kennt í febrúar og hindrunarstökk í mars.

 

Ef einhver börnum langar að vera með en eiga ekki hest, endilega hafið samband við Æskulýðsnefndina og við getum hjálpað til við að útvega hesta. 

Skráning á námskeiðin fer fram á e-maili: thyturaeska@gmail.com skráning fyrir 20. des

06.12.2018 13:22

Kort í höllina !!!

Höllin er búin að vera opin síðan í byrjun nóvember og nokkrir farnir að nota hana. Tobbi tók upp gólfið í höllinni og fljótlega verður auglýst þrifkvöld, líklega í næstu viku. 

Hægt er að kaupa kort í höllina og verður það eins og undanfarin ár,  það gildir frá 1. nóvember 2018 til 10. september 2019. 

Gjald Þytsfélaga er 22.000.- og má greiða inn á 0159-05-403351 kt. 550180-0499, annars fá korthafar sendan greiðsluseðil í vetur. 

Frekari upplýsingar hjá Ragnari í síma 869-1727 eða Tryggva í síma 660-5825.

Verðskrá vegna notkunar í Þytsheima er eftirfarandi: 
Kort fyrir meðlimi Þyts 22.000 kr
Kort fyrir aðra 27.000 kr
Dagpassi 2.000 kr
Einkatími-klukkutími milli 14-16:30 og 20-24:00 5.000 kr
Einkatími-klukkutími milli 9-14 virka daga 3.000 kr
Einkatími-klukkutími um helgar 5.000 kr

Einnig er hægt að leigja, sal, eldhús og kaffiaðstöðu og hljóðkerfi og þarf að borga fyrir það aukalega.

Ekki er opið fyrir einkatíma á milli klukkan 16:30 - 20:00 á virkum dögum.

Stéttarfélagið Samstaða endurgreiðir 50% af íþróttakortum en þó að hámarki 8.000 kr á hvern félagsmann á hverju 12 mánaða tímibili. Einnig eru mörg önnur stéttarfélög að bjóða félagsmönnum sínum einhvers konar endurgreiðslu og því um að gera fyrir alla að kanna sinn rétt.

Stjórn hallarinnar !!!

16.11.2018 17:38

Kæri Þytsfélagi

 

Félagið ætlar að athuga áhuga ykkar á reiðkennslu hjá Ísólfi Líndal Þórissyni í vetur.  Ekki er búið að setja niður ákveðið plan, en um einkatíma yrði að ræða virka daga (kvöld) sem fram færu í reiðhöllinni á Hvammstanga.  Þeir sem gætu haft áhuga á því hafi samband við Pálma í s.8490752, palmiri@ismennt.is eða í messenger.

 

05.11.2018 08:22

Knapar ársins

Knapar ársins hjá Þyt fengu verðlaun á uppskeruhátíðinni 

 

1.flokkur

1. Helga Una Björnsdóttir

2. Jóhann B. Magnússon

3. Kolbrún Grétarsdóttir

 

2. flokkur

1. Pálmi Geir Ríkharðsson

2. Sverrir Sigurðsson

3. Sigrún Eva Þórisdóttir

 

 

Ungmennaflokkur

1. Anna Herdís Sigurbjartsdóttir

2. Eva Dögg Pálsdóttir

3. Ásta Guðný Unnsteinsdóttir

 

 

Unglingaflokkur

1. Eysteinn Tjörvi Kristinsson

2. Rakel Gígja Ragnarsdóttir

3. Bryndís Jóhanna Kristinsdóttir

 

 

Barnaflokkur

1. Guðmar Hólm Ísólfsson

2. Dagbjört Jóna Tryggvadóttir

3. Indriði Rökkvi Ragnarsson

 

Við óskum öllum þessum knöpum innilega til hamingju með flottan árangur :)

30.10.2018 21:36

Höfðabakki ræktunarbú ársins

 

Ræktunarbú ársins 2018 var Höfðabakki, hér er mynd af fjölskyldunni á Höfðabakka með bikarana. 

 

Hæst dæmda hryssan var Trygglind frá Grafarkoti 

 

Hæst dæmdi stóðhesturinn var Brimnir frá Efri-Fitjum 

 

Hæst dæmdu kynbótahross HSVH

Hryssur 4 v. 1.sæti

Deila frá Höfðabakka

a.e 8,05

 

Hryssur 4 v. 2.sæti

Náttþoka frá Syðra-Kolugili

a.e 7,81

 

Stóðhestar 5 v. 1.sæti

Júpíter frá Lækjamóti

a.e 8,42

 

Stóðhestar 5 v. 2.sæti

Spölur frá Efri-Þverá

a.e 8,33

 

Stóðhestar 5 v. 3.sæti

Gustur frá Efri-Þverá

a.e 8,04

 

Hryssur 5 v. 1.sæti

Frelsun frá Bessastöðum

a.e 8,29

 

Hryssur 5 v. 2.sæti

Byrjun frá Höfðabakka

a.e 8,23

 

Hryssur 5 v. 3.sæti

Katalónía frá Lækjamóti

a.e 8,09

 

Stóðhestar 6 v. 1.sæti

Stefnir frá Súluvöllum ytri

a.e 8,12

 

Stóðhestar 6 v. 2.sæti

Fleinn frá Grafarkoti

a.e 7,91

 

Hryssur 6 v. 1.sæti

Trygglind frá Grafarkoti

a.e 8,35

 

Hryssur 6 v. 2.sæti

Flikka frá Höfðabakka

a.e 8,33

 

Hryssur 6 v. 3.sæti

Elíta frá Grafarkoti

a.e 8,11

 

Stóðhestar 7 v. 1.sæti

Brimnir frá Efri-Fitjum

a.e 8,75

 

Stóðhestar 7 v. 2.sæti

Karri frá Gauksmýri

a.e 8,50

 

Stóðhestar 7 v. 3.sæti

Garri frá Gröf

a.e 8,11

 

Hryssur 7 v. 1.sæti

Kyrrð frá Efri-Fitjum

a.e 8,26

 

Hryssur 7 v. 2.sæti

Eva frá Grafarkoti

a.e 8,15

 

Hryssur 7 v. 3.sæti

Skutla frá Höfðabakka

a.e 8,02

 

Hæst dæmda hryssa

Trygglind frá Grafarkoti

a.e 8,35

Flettingar í dag: 4550
Gestir í dag: 41
Flettingar í gær: 3375
Gestir í gær: 108
Samtals flettingar: 1172448
Samtals gestir: 63134
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 06:34:12