23.12.2015 14:28

Tilnefningar til íþróttamanns USVH árið 2015

Mánudaginn 28. desember kl. 20:00 verður kjöri á íþróttamanni USVH lýst á Staðarskálamótinu í körfubolta í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. 

Eftirfarandi aðilar eru tilnefndir fyrir góðan árangur á árinu: 

Aðalsteinn Grétar Guðmundsson
 fyrir kraftlyftingar, 
Dagbjört Dögg Karlsdóttir fyrir körfubolta, 
Eva Dögg Pálsdóttir fyrir hestaíþróttir, 
Hannes Ingi Másson fyrir körfubolta, 
Ísólfur Líndal Þórisson fyrir hestaíþróttir, 
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir fyrir körfubolta, 
Vigdís Gunnarsdóttir fyrir blak

Hestamannafélagið óskar öllum þessum íþróttamönnum innilega til hamingju með tilnefninguna.

19.12.2015 21:48

Dagskrá á vegum fræðslunefndar 2016 hjá Þyt

Dagskrá á vegum fræðslunefndar 2016

 

Janúar

"Fóðrun og fóðurefni fyrir reiðhross" og "Meðferð og hirðing reiðhrossa"

Fyrirlesari: Ingimar Sveinsson


Helgarnámskeið með Sigga Sig


Járningarnámskeið með Sigurði Torfa

Helgarnámskeið 12-16 tímar, bóklegt og verklegt  (24.-26. jan. eða 29.-31. jan)

Námskeiðið er byggt upp eftir óskum hvers og eins, þ.e. reynt að hafa eins persónumiðað og hægt er.

Gott að vita sem fyrst hverjir hafa áhuga á þessu námskeiði og hvor helgin hentar.

 

Febrúar

"Aftur á bak"

Námskeið fyrir byrjendur og þá sem hafa ekki stundað hestamennsku lengi en  langar aftur á bak. Fyrir þá sem langar að stunda hestamennsku aftur eftir langt  hlé eða hafa jafnvel misst kjarkinn þá er þetta námskeiðið. J

Kennari: Fanney Dögg Indriðadóttir

 

Að vinna í hendi

Fyrir alla sem vilja læra að vinna með/þjálfa  hest í hendi

Kennari: Fanney Dögg Indriðadóttir

 

Mars

Þjálfun gangtegunda

 (helgarnámskeið föstud-sunnudag)

Sýnikennsla og  verklegir tímar

Kennari: Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir

 

Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þáttöku. Nánari dags- og tímasetningar auglýstar síðar.

Fleiri námskeið og fræðsluerindi eru í athugun og verða auglýst síðar. Ef einhverjar óskir eru um fræðslu eða námskeið, endilega hafið samband.

Skráning á netfanginu thyturfraedsla@gmail.com

fyrir hönd fræðslunefndar

Sigrún Eva  og Esther

 

 

 

 

15.12.2015 15:30

Dagsetningar Húnvetnsku liðakeppninnar 2016



Dagsetningar  Húnvetnsku liðakeppninnar 2016 eru:

Smali: 5. febrúar
Fjórgangur: 19. febrúar
Fimmgangur, tölt T2 og tölt T7: 11. mars
Tölt T3 og skeið: 1. apríl


11.12.2015 09:02

Kennslan í vetur

Góðan dag, kennsla hefst mánudaginn 18. Janúar

Á Þriðjudeginum 19. Janúar er Trec en þriðjudeginum 26. Janúar er Sýningarhópur. Í vetur verður trec og sýningarhópur aðra hverja viku.

Ef það eru einhverjar ábendingar við tímasetningar endilega verið í sambandi við okkur og við reynum að finna út úr því J

thyturaeska@gmail.com

Tímaplan

Mánudagar.

16:30 - Keppnisþjálfun 1

17:15 - keppnisþjálfun 2

18:00 - Knapamerki

Þriðjudagar.

16:30 reiðþjálfun

17:15 Trec/sýningarhópur

 

Hópaskiptingar

Trec:

Ingvar Óli           

Margrét Jóna

Rakel Gígja

Bryndís

Indriði Rökkvi

Keppnisþjálfun 1:

Ingvar Óli

Rakel Gígja

Dagbjört

Keppnisþjálfun 2:

 Margrét Ylfa

Margrét Jóna

Bryndís

Guðmar

Knapamerki 1 - (12 ára og eldri) :

Ingvar Óli

Margrét Jóna

Rakel Gígja

Eysteinn

Sýningarþjálfun :

Dagbjört Jóna

Indriði Rökkvi

Rakel Gígja

Einar Örn

Hafþór Ingi

Ingvar Óli

Reiðþjálfun : höllinni verður skipt í 2 hluta þannig að kennt er á tveimur stöðum í einu.

Erla Dagmar

Einar Örn

Hanna Halldóra

Indriði Rökkvi

Ari Karl

Hafþór Ingi

Gabriela Dóra

Victoria Elma

Sverrir Franz

Tinna Kristín

19.11.2015 14:13

Reiðkennsla 2016

Nú erum við að skipuleggja vorönnina og þurfum við því að vita hvaða börn vilja fara á reiðnámskeið. Sumir hafa nú þegar skráð sig þegar uppskeruhátíðin var haldin en ekki eru kannski allir búnir að því og óskum við því eftir að skráning berist fyrir 5. desember nk. á netfangið thyturaeska@gmail.com. Nánari upplýsingar má fá þar eða hjá Helgu Rós í síma 848-7219.
Þau reiðnámskeið sem við viljum bjóða upp á eru;

  • Yngsti hópurinn (kemur aðra hverja helgi og foreldrar eða einhver fullorðinn þarf að vera með hverju barni og hesti) Kennd eru grunnatriði með leikjum.
  • Reiðþjálfun - reiðþálfun læra börnin að stjórna hesti sínum í gegnum æfingar og reiðleiðir, og læra um gangtegundir. Einnig farið yfir ásetu, stillingar á reiðtygum og heilbrigði hestsin. Kennsla er innan og utandyra.
  • Keppnisþjálfun - undirbúningur knapa og hests fyrir keppnir og þjálfun til að gera hestana betri. Þar læra knapar ásetu og stjórnun og er leiðbeint að sitja rétt og vel. Farið verðru yfir reglur og allan undirbúning fyrir keppnisvöllinn.
  • Knapamerki 1 (fyrir 12 ára og eldri) - Felur í sér bóklega og verklega kennslu. Þar má nefna grunnþættir atferlisfræði, líkamsbygging hestsins, öryggisatriði, gangtegundir,reyðtygi, ásetur, teyma, undirbúa hestinn fyrir reið og rétt taumhald. Þetta stig er grunnurinn fyrir því að geta tekið knapamerki 2.
  • Sýningarhópur (mun búa til atriði m.a fyrir sýningu Þyts og er kennt aðrahverja viku) - Gert verður atriði sem sýnt verður á sýning Þyts og mögulega á Æskan og hesturinn. Þetta reynir á samvinnu og reiðmennssku.
  • Trec - Trec er nokkuð nýtt hér á landi og vorum við með þetta námskeið í fyrra og var það mjög gaman. Það reynir mikið á sambands mans og hest ásamt reiðmennsku. Knaparnir leysa þrautir á hestinum og einnig við hendi þannig að knapinn lærir að þekkja merkjamál hestsins og leysa úr þrautnum sem krefjast oft mikillar næamni og léttleika. Kennaslan fer fram innandyra og utandyra. https://www.youtube.com/watch?v=pJMyL4fwdNs#t=29

Ef lítil skráning er í einhverja hópa gæti þurft að fella það námskeið niður.

Áætlað er að byrja kennsluna upp úr miðjum janúar.


Einnig munum við bjóða upp á helgarnámskeið sem verða auglýst síðar. Humyndir um námskeið

Þjálfun gangtegnunda
Gangskiptinganámskeið



Kv, nefndin.


Hestar fyrir börn.

Hestamannafélaginu langar að athuga með áhuga hjá foreldrum á því að fá hest fyrir barnið sitt sem það getur verið með á námskeiðum vetrarins.

Það eru nokkrir góðir barnahestar í boði gegn vægu gjaldi/húsplássi. Tvö börn geta verið saman með einn hest til þess að lækka gjaldið.

Í vetur verða námskeið fyrir minna vön börn og meira vön börn, þar sem þeim er kennt ýmislegt um ásetu og reiðmennsku, gangtegundir og keppni.

Foreldrar barna sem langar að stunda hestamennsku en hafa ekki aðgang að hesti mega endilega hafa samband í síma 848-7219 Helga eða í síma 8637786 Kolla. Eins og í fyrra að þá er Þytur aðeins milligönguaðili á milli eigenda hrossa og foreldra.

18.11.2015 10:19

Frá Öryggisnefnd LH

 

Öryggisnefnd LH beinir því til allra hestamanna að nota endurskin þegar skyggja tekur. Hér er um að ræða ódýrt öryggistæki sem getur bjargað bæði knapa og hesti.

Á facebook síðu endurskinsátaks hestamanna má sjá muninn á því hvað bílstjórinn sér, annars vegar þegar notað er endurskin og hins vegar þegar það er ekki notað.

https://www.facebook.com/endurskinsatakhestamanna/?fref=ts

11.11.2015 12:10

Fundur

Almennur félagsfundur verður haldinn í félagshúsi Þyts, þriðjudagainn 17. nóvember og hefst kl. 20.30

 

Dagskrá fundarins er:

1. vetrarstarfið

 2. önnur mál

Stjórn Þyts

03.11.2015 11:35

Uppskeruhátíð Þyts og hrossaræktarsamtakanna

Laugardaginn sl. var Uppskeruhátíð Þyts og Hrossaræktarsamtaka vestur-Húnavatnssýslu. Skemmtunin tókst afar vel og skemmtinefndin fór á kostum. 

Lækjamót er ræktunarbú ársins 2015

 

 

Ísólfur Líndal Þórisson knapi ársins 2015 í 1. flokki, Þorgeir Jóhannesson knapi ársins í 2. flokki og Birna Olivia Agnarsdóttir knapi ársins í ungmennaflokki.


Knapar ársins:
1. flokkur
1. sæti Ísólfur Líndal Þórisson
2. sæti James Bóas Faulkner
3. sæti Tryggvi Björnsson

2. flokkur
1. sæti Þorgeir Jóhannesson
2. sæti Magnús Ásgeir Elíasson
3. sæti Sigrún Eva Þórisdóttir

Ungmennaflokkur:
1. sæti Birna Olivia Agnarsdóttir
2. sæti Kristófer Smári Gunnarsson
3. sæti Fanndís Ósk Pálsdóttir

Hér fyrir neðan má sjá viðurkenningar sem veittar voru fyrir árangur ársins í ræktunarstarfinu. 
 
Hæst dæmdi stóðhesturinn og hæst dæmda hryssan eru:

Brimnir frá Efri-Fitjum aðaleinkunn 8,45

 
 

Snilld frá Syðri-Völlum aðaleinkunn 8,37

Hæst dæmdu hross í hverjum flokki:
 
7 vetra og eldri hryssur
1. Vág frá Höfðabakka                8,33
2. Orka frá Syðri - Völlum          8,24
3. Gríma frá Efri - Fitjum            8,16
 
6 vetra hryssur og stóðhestar
1. Hugsun frá Bessastöðum    8,21
2. Vala frá Lækjamóti                8,21
3. Hellen frá Bessastöðum      8,05
 
1. Brimnir frá Efri - Fitjum        8,45
2. Karri frá Gauksmýri               8,22
3. Vignir frá Syðra - Kolugili     8,12
 
5 vetra hryssur og stóðhestar
1.Snilld frá Syðri - Völlum        8,37
2. Hafdís frá Lækjamóti            8,12
3.Ósvör frá Lækjamóti              8,07
 
1.Megas frá Gauksmýri           8,35
2. Aur frá Grafarkoti                8,12
3. Herjann frá Syðri-Völlum    8,03
 
4 vetra hryssur
1.Fröken frá Bessastöðum      8,04
2.Iða frá Lækjamóti                   8,00
3.Etna frá Gauksmýri                7,82
 
 

30.10.2015 23:32

Uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar Þyts



Í dag var á Gauksmýri haldin uppskeruhátíð æskulýðsstarfsins hjá Þyti. Mörg af börnunum og unglingunum sem tóku þátt í starfinu síðastliðið starfsár mættu til að taka á móti viðurkenningum fyrir þátttökuna og eiga skemmtilega stund saman. Um 60 börn og unglingar tóku þátt í starfinu síðasta starfsár sem var mjög fjölbreytt; hestafimleikar, reiðnámskeið, Trec, Knapamerki 2 og 4 og ýmis mót sem þau tóku þátt í. Allir krakkarnir fengu viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og húfu merkta Þyti. Kolbrún Stella formaður Þyts veitti verðlaun fyrir stigahæstu þrjá knapa barna- og unglingaflokks.


Stigahæstu knapar í barnaflokki:

1. sæti Eysteinn Tjörvi Kristinsson

2. sæti Rakel Gígja Ragnarsdóttir

3. sæti Ingvar Óli Sigurðsson


Stigahæstu knapar í unglingaflokki:

1. sæti Karitas Aradóttir 

2. sæti Eva Dögg Pálsdóttir

3. sæti Anna Herdís Sigurbjartsdóttir 

23.10.2015 14:36

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka V-Hún og Hestamannafélagsins Þyts 2015

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka V-Hún og Hestamannafélagsins Þyts 2015
 
Verður haldin laugardagskvöldið 31.október í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Matur, gleði og gaman.
Þessi frábæra skemmtun hefst stundvíslega kl 20:00 en húsið opnar kl 19:30 og það verður sko stemming.
Kjartan Óli sér um matinn og á boðstólnum verður:

Lamb að hætti Lemmy frænda með kartöflustöppu, bourbonsósu & salati.
BBQ kjúklingur með hrísgrjónum, bökuðu rótargrænmeti 
& kaldri piparrótarsósu.
Brownie með kaffinu.

Veislustjórn verður í höndum sauðfjárbónda úr austursýslunni.
.
Forsala miða og pantanir fara fram í Söluskálanum á Hvammstanga, sími 451-2465, hefst mánudag 26.október og þarf að vera lokið að kvöldi miðvikudagsins 28.október, athugið ekki posi. Miðaverð á uppskeruhátíðina er kr 6.900 matur, skemmtun og ball, en ef þú vilt hins vegar bara skella þér á dansleik með Trukkunum, sem hefst kl 23:00, þá kostar það litlar 3000 kr. Enginn posi á staðnum og ekki selt gos!
Mikilvægt er að panta miða í tíma.  Hægt er að nálgast pantaða miða fram á föstudag í Söluskálanum.

Eftirfarandi bú eru tilnefnd ræktunarbú ársins af Hrossaræktarsamtökum V-Hún.
Bessastaðir – Gauksmýri – Lækjamót – Syðri-Vellir

Athugið að það eru allir velkomnir á þessa frábæru skemmtun. Þetta er einstakt tækifæri til að bjóða frúnni eða bóndanum út á lífið.
Pússum dansskóna og setjum rúllur í hárið – Þetta verður stórfenglegt.

Sjáumst nefndin

19.10.2015 13:13

Uppskeruhátið æskulýðsstarfs Þyts



Föstudaginn 30. október kl. 17:00 verður Æskulýðsnefndin með uppskeruhátíð fyrir börn og unglinga sem tóku þátt í starfinu hjá Þyti síðastliðinn vetur og sumar. Hátíðin verður í Sveitasetrinu Gauksmýri.

Veittar verðar viðurkenningar fyrir þátttökuna í starfinu, greint frá því hvað verður framundan og tekið við skráningum í námskeið vetrarins.

Vonumst til að sjá sem flesta sem tóku þátt í hestafimleikunum, reiðþjálfun, Knapamerkjum, sýningum, keppnum og öðru skemmtilegu sem við gerðum á árinu, bæði börnin, unglingana og aðstandendur þeirra.

Æskulýðsnefndin

15.10.2015 18:10

Framtìð landsmóta, hver er þín skoðun?

Landssamband Hestamannafélaga og Bændasamtök Íslands standa fyrir vinnufundi um framtíð landsmóta hestamanna 17. okt nk. Markmið vinnufundarins er að félagsmenn komi saman til að móta stefnu varðandi Landsmót. 

Tveir Þytsfélagar fara à fundinn fyrir hönd félagsins, við ì stjórninni höfum rætt okkar skoðanir á framtíð landsmóta og erum komin með okkar niðurstöðu en okkur langar til að fà fleiri sjónarhorn og taka saman helstu niðurstöður fyrir okkar fulltrúa. Því biðjum við um skoðanir félaga à neðangreindum punktum. Megið senda tölvupóst á Guðrúnu à gudrunstei@hunathing.is sem mun taka niðurstöðurnar saman fyrir fulltrùana à föstudaginn 16.10 nk.
 
Punktar;
Hver er tilgangur Landsmóta?
Fyrir hverja er LM?
Hverju viljum við ná fram? viljum við fjölga gestum - erlendum og innlendum? 
Keppendur á Landsmótum, hverjir hafa þátttökurétt? à að breyta úrtökum? à að skipta upp kynbóta og gæðingakeppninni
Dagskrá og afþreying á Landsmótum? à að hafa aðra afþreyingu en hestamennsku á LM? à að stytta/lengja dagskrá? à að breyta timasetningunni? 
Umgjörð Landsmóta? eigum við að hafa einn þjóðarleikvang íslenska hestsins eða hafa landsmótið til skiptis à nokkrum stöðum eins og núverandi fyrirkomulag er?
Þurfa öll LM að vera eins?
 
Þið þurfið ekki að senda inn skoðanir à öllum punktunum nema auðvitað ef þið hafið skoðanir à þeim öllum. emoticon
 
Hlökkum til að fà ykkar skoðanir.
Stjórnin
 

14.10.2015 08:59

Haustskýrslur búfjár 2015

Ágætu hestamenn í Norðvesturumdæmi.
Nú hefur verið opnað fyrir skil á haustskýrslum búfjár 2015.
Samkvæmt lögum eiga allir eigendur/umráðamenn búfjár að skila árlegri haustskýrslu fyrir 20. nóvember um búfjáreign, fóður og landstærðir eftir því sem við á.
Skil fara fram með rafrænum hætti á www.bustofn.is.
Þetta er annað árið sem búfjáreigendur sem einungis eiga hesta þurfa að skila inn haustskýrslu og eru þeir eindregið hvattir til að skila á tilsettum tíma

Rétt er líka að geta þess að áskilið er í lögum að þeir sem ekki skila skýrslu skulu heimsóttir og upplýsinga aflað á þeirra kostnað.

Ef einhverjar spurningar vakna er velkomið að hafa samband við undirritaðann:

einar.magnusson@mast.is
8580855

Einar Kári Magnússon
 

05.10.2015 15:03

Uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Þyts og Hrossaræktarsamtaka V-Hún.

Uppskeruhátíðin okkar verður haldin hátíðleg 31. október.  
Takið daginn frá - nánar auglýst síðar.

05.10.2015 12:23

Árleg fundarferð um landið

 

Árleg fundarferð um landiðAlmennir fundir í fundarröð Félags hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hestamanna hefjast fljótlega. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru eftirfarandi:

• Markaðsátak í hestamennsku – kynning.

• Sýningarárið 2015 í kynbótadómum. 

• Vinna við nýjan dómskala í kynbótadómum verður kynnt.

• Val kynbótahrossa á Landsmót 2016 – hugmyndir kynntar.

• Framkvæmd Landsmóts 2016.

Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfunni og mikilvægt að hestafólk fjölmenni á fundina.

Með fulltrúum Félags hrossabænda og fagráðs, þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og fagráðs og Þorvaldi Kristjánssyni, ábyrgðarmanni í hrossarækt verður fulltrúi Landssambands Hestamannafélaga og munu þau verða frummælendur fundanna.

 

Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

5. okt. Höfuðborgarsvæðið kl. 20:00. Í Samskipahöllinni í Spretti.

6. okt. Eyjafjörður kl. 20:00. Í Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit. 

7. okt. Skagafirði kl. 20:00. Í Tjarnarbæ á Sauðárkróki.

8. okt. Húnavatnssýslur kl. 20:30 – Gauksmýri.

 

 Næstu fundir í fundarröðinni verða kynntir fljótlega.

 

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

Flettingar í dag: 11526
Gestir í dag: 894
Flettingar í gær: 3375
Gestir í gær: 108
Samtals flettingar: 1179424
Samtals gestir: 63987
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 11:07:28