20.11.2012 08:48
Vinna aftur í dag !!!
Í dag, þriðjudaginn 20.11 verður haldið áfram að þrífa höllina, búið er að þrífa alla veggina inn á reiðsvæðinu og kaffisalinn, en í dag þarf að halda áfram, pússa glerin, þrífa áhorfendapallana, klósettin og fl. Áætlað er að byrja um kl. 17.00, allir þeir sem geta og hafa tíma til að aðstoða eru beðnir að hafa samband við Ella í síma 894-9019.
Með fyrirfram þökk
Stjórn Þytsheima
19.11.2012 21:47
Sýnikennslur 1.des í Þytsheimum
|
|
||
17.11.2012 23:01
Vinna upp í höll
mynd úr safni, Gunnar flottur í atriðinu um opnun liðakeppninnar 2012 |
Mánudaginn 19.11. verður byrjað að þrífa höllina, áætlað er að byrja um kl. 17.00, allir þeir sem geta og hafa tíma til að aðstoða eru beðnir að hafa samband við Ella í síma 894-9019.
Með fyrirfram þökk
Stjórn Þytsheima
13.11.2012 12:02
Fundur annaðkvöld upp í félagshúsi Þyts
Minnum á fundinn annaðkvöld upp í félagshúsi...
Almennur félagsfundur verður haldinn í félagshúsi Þyts, miðvikudaginn 14. nóvember og hefst kl. 20.30
Dagskrá fundarins er:
1. Húnvetnska liðakeppnin
2. vetrardagskráin
3. Þytsheimar
4. önnur mál.
Stjórn Þyts
12.11.2012 21:07
Knapamerkja og prófdómaranámskeið.
Sunnudaginn 18 nóvember verður boðið upp á fræðsludag og námskeið um Knapamerkin auk þess sem prófdómurum verður boðið upp á að uppfæra dómararéttindi sín og nýjum að spreyta sig á að taka próf. Fyrri hluti námskeiðsins verður öllum opinn sem áhuga hafa á að fræðast um Knapamerkin eða ætla sér að bjóða upp á Knapamerkjanámskeið í vetur. Seinni hluti námskeiðsins er einungis hugsaður fyrir þá aðila (reiðkennara) sem hyggjast taka prófdómarapróf.
Ath. Þeir sem eru með prófdómararéttindi verða mæta á þetta námskeið og taka prófdómaraprófið til að viðhalda núverandi réttindum.
Skráningu í prófdómarahluta námskeiðsins lýkur föstudagskvöldið 9 nóvember.
Staðsetning – Fáksheimilið og Reiðhöllin í Víðidal
Dagsetning - 18 nóvember frá klukkan 10:30 til 18
Verð
Það er frítt á fyrri hluta námskeiðsins en verð fyrir þá sem mæta á prófdómaranámskeið er 20.000 krónur og innifalið í því er kaffi og snarl yfir daginn auk próftökugjalds.
Dagskrá
Klukkan: 10:30 – 10:45 Kynning Helga Thoroddsen
Klukkan: 10:45 – 11:15
Erindi: Arndís Brynjólfsdóttir, reiðkennari.
Reynslan af Knapamerkjunum í Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra.
Kaffihlé
Klukkan: 11:30 – 12:00
Erindi: Rósa Kristinsdóttir og Oddný Erlendsdóttir.
Fjalla um reynsluna af því að vera nemandi í Knapamerkjum. Báðar hafa lokið prófi á 5. Stigi Knapamerkjanna.
Klukkan: 12:00 – 12: 15 Fyrirspurnir og umræður
Þessi fyrri hluti námskeiðsins er öllum opinn sem áhuga hafa á að kynna sér Knapamerkin og leita upplýsinga um þau.
Matarhlé
Klukkan 13:00 – 13:30
Farið yfir helstu verkefni Knapamerkjanna þessa dagana og hvað er framundan.
Umræður
Klukkan 13: 40 - 15:30
Farið yfir helstu áhersluatriði í prófum og æfð prófdæming af myndböndum.
Kaffihlé
Klukkan 16:00 – 18:00
Prófdómarapróf
Þessi hluti námskeiðsins er opinn reiðkennurum sem hyggjast kenna Knapamerkjanámskeið og prófdómurum sem vilja uppfæra prófdómararéttindi sín. Dæmd verða 2 próf á hverju stigi Knapamerkjanna og prófgögnum skilað til prófdómara.
08.11.2012 12:06
Sýnikennslur í Þytsheimum
Laugardagskvöldið 1.desember verða áhugaverðar sýnikennslur fyrir alla hestamenn í Þytsheimum.
Allur aðgangseyrir rennur óskiptur til Hestamannafélagsins Þyts. Nánari dagskrá auglýst síðar.
Takið kvöldið frá
07.11.2012 10:54
Námskeið á vegum æskulýðsnefndar í vetur
Æskulýðsnefnd Þyts ætlar að bjóða upp á nokkur námskeið í vetur. Það ræðst af þátttöku hvort námskeiðin verða, en af viðbrögðum að dæma þá er líklegt að þau verði öll haldin. Vinsamlegast skráið ykkur á þau námskeið sem þið viljið vera á fyrir lok nóvember. (Þeir sem skráðu sig á uppskeruhátíðinni eru nú þegar komnir á blað)
Námskeiðin eru:
Byrjendahópur, 9 ára og yngri. 10 skipti á laugardögum frá kl. 11-12, verð kr. 2.000. Ábyrgðarmenn og leiðbeinendur Alla Einars og Helga Rós
Reiðþjálfun minna vanir. 2 bóklegir tímar og 10 verklegir tímar. Hefst í byrjun febrúar. Verð kr. 6.500.
Reiðþjálfun meira vanir. 2 bóklegir tímar og 10 verklegir tímar. Hefst í byrjun febrúar. Verð kr. 6.500.
Keppnisþjálfun. 10 verklegir tímar. Verð 6.000 kr.
Knapamerki 2. Bóklegir tímar eru núna fyrir áramót og eru nú þegar byrjaðir. Verklegir tímar verða eftir áramót.
Fimleikar á hesti. 2 pláss laus eftir áramót. Verð 10.000. Ábyrgðarmenn og kennarar Irina og Kathrin.
Skráningar og nánari upplýsingar sendist í netfangið thyturaeska@gmail.com
Æskulýðsnefndin
Guðný Helga, Þóranna, Helga Rós, Irina Kamp og Þórdís Helga
05.11.2012 12:21
Ráðstefnan Hrossarækt 2012
"Ráðstefnan Hrossarækt 2012 verður haldin í félagsheimilinu Hlégarði, Mosfellsbæ, laugardaginn 17. nóvember og hefst kl. 13:00. Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhugamönnum.
30.10.2012 18:58
Vöru- og sölukynning
Þann 1. desember nk. verða verslanirnar Kidka, Knapinn Borgarnesi ofl. með kynningu og sölu á vörum sínum í Þytsheimum. Þetta mæltist vel fyrir í fyrra, nýtið ykkur tækifærið og verslið í heimabyggð! Nánar auglýst síðar.
Fræðslunefnd
30.10.2012 15:45
Sigríður Ólafsdóttir ver meistararitgerð sína
Föstudaginn 2. nóvember n.k. mun Sigríður Ólafsdóttir verja meistararitgerð sína um söluverðmæti íslenskra hrossa við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Athöfnin hefst kl. 14 og verður í Ásgarði. Leiðbeinendur eru Þorvaldur Kristjánsson og Daði Már Kristófersson. Prófdómari er Sveinn Agnarsson, Háskóla Íslands. Helsta takmark búfjárræktar er að auka arðsemi ræktunarstofnsins með því að bæta eiginleika hans. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á því hvaða eiginleikar íslenskra hrossa eru verðmætastir í ræktun. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt. Annars vegar að safna gögnum um eiginleika og söluverð einstakra hrossa til að meta hvernig mismunandi eiginleikar hafa áhrif á verð. Hins vegar að kanna hagfræðilegt vægi þeirra eiginleika sem eru innifaldir í kynbótamati fyrir íslensk hross og bera saman hagfræðilegt vægi og núverandi vægi þessara eiginleika. http://www.lbhi.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6374Rannsóknin fór þannig fram að gögnum var safnað frá hrossabændum víðs vegar um land um seld hross á árunum 2006-2009. Send voru út eyðublöð til útfyllingar, eitt fyrir hvert selt hross, þar sem ræktendur gáfu seldum hrossum einkunn fyrir gangtegundir og sköpulag. Einnig var safnað upplýsingum um aldur, kyn, lit, hvort hrossið var selt innanlands eða erlendis, hvort hestar voru stóðhestar eða geldingar, hver BLUP einkunn hrossanna var, hvort þau voru sýnd eða ekki og hvort þau höfðu tekið þátt í keppni eða ekki, hvort þau voru tamin eða ekki, hvernig skapgerðareiginleikar hestsins voru, fjölda mánaða í tamningu, kynbótadómseinkunn föður og móður ásamt kynbótadómseinkunn einstaklinga sem voru sýndir. Niðurstöður verðlagsgreiningar sýndu að búaáhrif voru langstærsti áhrifavaldur á verð hrossa. Brokk, vilji og geðslag, háls, herðar og bógar og BLUP einkunn höfðu jákvæð áhrif á verð, ásamt því að stóðhestar voru verðlagðir hærra en hryssur og geldingar. Aldur við sölu hafði jákvæð áhrif á verð sýndra hrossa en neikvæð áhrif á verð ósýndra hrossa. Niðurstöður hagfræðigreiningar benda til þess að sköpulag í kynbótadómi eigi að gilda minna en verið hefur, og jafnframt að kostir eigi að gilda meira en verið hefur.
29.10.2012 10:13
Reiðnámskeið!
Komnar eru hugmyndir að nokkrum námskeiðum fyrir fullorðna í vetur. Okkur langar að kanna áhuga ykkar félagsmanna á eftirfarandi námskeiðum:
-Járninganámskeið
-Knapamerki 1 og 2
-Byrjendanámskeið
-Reiðnámskeið fyrir lengra komna
-Viltu læra að leggja á skeið?
-Viltu bæta þig í keppni?
-Frumtamninganámskeið. Stefnan er að hafa þetta námskeið núna í nóv-des.
Ef þið hafið aðrar óskir eða hugmyndir að námskeiðum, látið okkur þá endilega vita.
Til að námskeið verði haldið verður að vera næg þáttaka, því er það mikilvægt að þið látið okkur vita ef áhugi er fyrir hendi! Sérstaklega gildir þetta um frumtamningarnámskeiðið þar sem það yrði vonandi haldið fljótlega.
Maríanna sími:896 3130
Alda sími: 847 8842
28.10.2012 20:28
Uppskeruhátíð æskulýðsstarfs Þyts
Í gær var uppskeruhátíð æskulýðsstarfsins hjá hestamannafélaginu Þyti. Þar var farið yfir starf ársins og vetrarstarfið kynnt. Allir þátttakendur fengu viðurkenningu og smá gjöf frá æskulýðsnefndinni. Á myndinni hér að ofan er hluti af krökkunum sem tóku þátt í starfinu, fleiri myndir eru í myndaalbúminu.
Viðurkenningar voru veittar fyrir Knapa ársins í barnaflokki og unglingaflokki.
Karitas Aradóttir var valin Knapi ársins í barnaflokki
Hér er Karitas á Gyðju frá Miklagarði á gæðingamóti Þyts.
Helga Rún Jóhannsdóttir var valin Knapi ársins í unglingaflokki.
Hér er Helga Rún á Prins frá Hesti á íþróttamóti Þyts.
28.10.2012 14:28
Uppskeruhátíðin í gærkvöldi
Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur-Húnavatnssýslu og hestamannafélagsins Þyts var haldin laugardagskvöldið 27.október sl. Veittar voru viðurkenningar fyrir hæst dæmdu stóðhesta og hryssur í öllum flokkum. Hæst dæmda hrysssan og hæst dæmdi stóðhesturinn á árinu hlutu einnig sérstök verðlaun en það voru að þessu sinni Návist frá Lækjamóti (a.e 8,21) Bassi frá Efri-Fitjum (a.e 8,15).
Ræktunarbú ársins er Efri-Fitjar þeirra Gunnars og Grétu. Gunnar og Gréta tóku við fleiri verðlaunum þetta kvöld m.a sem eigendur heiðursverðlaunahryssunnar Ballerínu frá Grafarkoti, frábær árangur hjá þeim.
Hestamannafélagið veitti síðan stigahæstu knöpum viðurkenningar en það voru í ár, Jónína Lilja Pálmadóttir í ungmennaflokki, Vigdís Gunnarsdóttir í 2.flokki og Ísólfur Þ. Líndal í 1.flokki.
Ræktunarbú ársins 2012 er Efri-Fitjar
Knapar ársins eru, í ungmennaflokki Jónína Lilja Pálmadóttir, í 2. flokki Vigdís Gunnarsdóttir og í 1. flokki Ísólfur L Þórisson.
myndir frá hátíðinni eru komnar inn í myndaalbúm hér á síðunni.
24.10.2012 10:52
Dagatal Þyts 2013
Kæru félagsmenn og aðrir.
Dagatals Þyts 2013 er nú í vinnslu og óskum við eftir myndum til að skreyta dagatalið. Dagatalið er mikilvægur þáttur í fjáröflun
fyrir félagið okkar og væri gaman að hafa sem fjölbreyttastar myndir í því.
Vinsamlegast sendið á isolfur@laekjamot.is.
23.10.2012 08:25
Landsþing Hestamanna hvetur hestamenn að gera athugasemd við frumvarpsdrög að umferðarlögum.
Ekkert varðandi réttarstöðu hestamanna er í frumvarpi til nýrra umferðarlaga
Afar ötult starf hefur verið unnið í Samgöngunefnd LH undanfarið og skilaði hún af sér veglegri skýrslu samgöngunefndar fyrir árin 2010 og 2012 má m.a. finna samskipti formanns nefndarinnar, Halldór Halldórsson, við alþingismenn vegna reiðvegamál og um óskiljanlega ástæðu að skilgreining á reiðvegi sé dottin úr umferðalögum.
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til nýrra umferðalaga og þar er ekki að finna neitt er varðar réttarstöðu ríðandi umferðar á skilgreindum reiðvegum. Halldór benti á þetta á Landsfundi LH og vakti athygi á því að frestur til að gera athugasemd við frumvarpið rennur út næstkomandi miðvikudag, 24. október.
Í kvöld barst hvatning til allra sem vilja láta sér málið varða um að gera athugasemd við hið nýja frumvarp. Til glöggvunar hefur verið skrifað skjal sem hægt er að nota við gerð athugasemdarinnar. Þar sem er feitletrað í textanum breytir fólk í Við ef fleiri en einn eru um póstinn, ekki gleyma að setja undir nafn / nöfn og kennitölu / kennitölur. "Sýnum nú einu sinni mátt okkar hestamanna," segir í pósti frá Halldóri.
Uppkastið fylgir hér með og er ekki úr vegi að hvetja alla hestamenn að sýna samstöðu. Athugasemdum þarf að skila inn til Nefndarsvið Alþingis fyrir 24. október nk.
______________________________________________________________________________________________________________________
Nefndasvið Alþingis
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis
nefndasvid@althingi.is
Frumvarp til umferðarlaga 179. mál.
Í frumvarpi til nýrra umferðalaga er ekki að finna skilgreiningu á reiðvegum eða neitt er varðar réttarstöðu ríðandi umferðar á skilgreindum reiðvegum, stígum eða slóðum og geri ég undirritaður alvarlegar athugasemdir við að svo sé ekki.
Það verður að rúmast í nýjum umferðarlögum ákvæði þess efnis að akstur vélknúinna ökutækja sé óheimill á skilgreindum reiðstígum og slóðum.
Virðingarfyllst
Nafn:
Kt:
_____________________________________________________________________________________________________________________
Hestamenn! Ég hvet ykkur til að senda inn athugasemdina hér að ofan. Hestamenn eru sagðir vera "lélegur þrýstihópur" af embættismönnum, stjórnmálamönnum og sveitarstjórnarfólki, vegna þess hve okkur gengur illa að standa saman að málum. En nú skulum við öll senda inn athugasemd því það er með öllu óþolandi að reiðvegir og réttarstaða hestamanna á reiðvegum sé ekki skilgreind í umferðarlögum. Göngustígar og hjólastígar eru hins vegar skilgreindir í þessum frumvarpsdrögum.
Og koma svo!! senda inn athugasemd fyrir miðvikudaginn 24. október.!!
Með kveðju
Ása Hólmarsdóttir, Dreyra og landsþingsfulltrúi í ferða- og umhverfisnefnd 2012.